Doktorsvörn í heilbrigðisvísindum - Jónína Sigurgeirsdóttir
Mánudaginn 18. september 2023 varði Jónína Sigurgeirsdóttir doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Læknadeild. Ritgerðin bar heitið: Sjálfstjórnun í langvinnri lungnateppu (LLT): Reynsla sjúklinga, fjölskyldna og meðferðarlækna (e. Self-Management in Chronic Obstructive Pulmonary Disease (COPD): Patients’, Families’, and Principal Physicians’ Experiences).
Andmælendur voru dr. Kirsten Elisabeth Lomborg, prófessor við Steno Diabetes Center í Kaupmannahöfn, og dr. Sigurður Kristinsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.
Umsjónarkennari var Gunnar Guðmundsson, prófessor, og leiðbeinandi var Sigríður Halldórsdóttir, prófessor. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Eyþór Hreinn Björnsson, lungnalæknir, og Ragnheiður Harpa Arnardóttir, dósent.
Dr. Þórarinn Guðjónsson, prófessor og deildarforseti Læknadeildar, stjórnaði athöfninni.