Doktorsvörn í sagnfræði: Kristjana Kristinsdóttir
Föstudaginn 29. janúar 2021 fór fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild. Þá varði Kristjana Kristinsdóttir doktorsritgerð sína í sagnfræði sem nefndist Lénið Ísland 1541-1683: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra. Vörnin fór fram í Hátíðasal.
Andmælendur við vörnina voru dr. Agnes Arnórsdóttir og dr. Árni Daníel Júlíusson.
Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnaði athöfninni.