• Munir, gögn
    Þessi mynd fannst stök í myndasafni Háskóla Íslands. Á myndinni er Macintosh-tölva, af gerðinni IIcx, sem kom á markað árið 1989. Hún hefur sjálfsagt verið nýjasta nýtt þegar myndin var tekin. Ekki er vitað hvort hún var í eigu Háskóla Íslands en myndin gæti allt eins verið auglýsingamynd. Á skjánum sést handrit.