Styrktarsjóður Eggerts Briem -
Myndin er tekin vestan við gömlu Loftskeytastöðina 25. maí 1979 í tilefni af gjöf Eggerts sem var tveir kröftugir Skidoo-Alpine vélsleðar ætlaðir til þykktarmælinga á jöklum. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Már Magnússon, jöklafræðingur; Helgi Björnsson, jöklafræðingur; Sigurður Þórarinsson, prófessor í jarðfræði; Páll Theódórsson, eðlisfræðingur; Marteinn Sverrisson, rafmagnsverkfræðingur; Eggert V. Briem, Þorbjörn Sigurgeirsson, prófessor í eðlisfræði; og Leó Kristjánsson, jarðeðlisfræðingur.