Efnahags. 20. nóvember 1999.
Tengt? "Íslensk málnefnd stendur fyrir málræktarþingi í dag í tilefni af degi íslenskrar tungu í samvinnu við Samtök móðurmálskennara og Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands. Þingið verður haldið í hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 11 með ávarpi menntamálaráðherra. Meginefni þingsins er íslenskt mál og menntun. M.a. er fjallað um máltöku barna, aðalnámskrá, málrækt í fortíð og framtíð og íslensku í vísindum, leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður milli kl. 15 og 16." (Dagur, 20. nóvember 1999)