Opnun Charcot- seturs í Sandgerði Opnun Charcot seturs í Sandgerði .
Viðburðir
Heimskautin heilla
Í dag var opnuð viðamikil vísindasöguleg sýning í Háskólasetri Suðurnesja í Sandgerði um ævi og starf franska heimskautafarans, leiðangursstjórans og læknisins Jean-Baptiste Charcot. Á sýningunni eru dýrgripir úr vísindasögu Frakklands, m.a. fallbyssa og lágmynd úr flaki Pourquoi-Pas? sem fengnar voru að láni frá Sjóminjasafni franska flotans, Musée de la Marine.
Opnun sýningarinnar er hluti af menningarhátíðinni Pourquoi-pas? Franskt vor á Íslandi. Sýningin er jafnframt framlag Háskóla Íslands til Vetrarhátíðar. Leitast hefur við að endurskapa það magnaða andrúmsloft sem ríkti um borð í rannsóknaskipunum á sínum tíma, en auk þess hefur verið safnað saman margvíslegum fróðleik í máli og myndum um æfi Charcots og störf
Opnun Charcot seturs í Sandgerði 25. febrúar 2007.