Háskóli Íslands og menntamálaráðuneytið.
Háskóli Íslands og menntamálaráðuneytið 11. janúar 2007. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands undirrita samning um eflingu kennslu og rannsókna við HÍ til næstu fimm ára. Til þess fær skólinn um þriggja milljarða króna viðbótarframlag á samningstímanum. Um er að ræða beint framlag til rannsókna við skólann óháð breytingum sem verða á nemendafjölda við skólann.