Háskóli Íslands og Harvard háskóli staðfesta viljayfirlýsingu um
Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Faraldsfræðideild Harvard Háskóla hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf, sem felur í sér sameiginleg rannsóknarverkefni og uppbyggingu á framhaldsmenntun í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands. Þannig vilja skólarnir sameiginlega stuðla að hágæða vísindastarfi. Hornsteinn samstarfsins er fyrirhugað rannsóknarverkefni á krabbameini í blöðruhálskirtli sem byggir á einstökum íslenskum gögnum.