Blysför í Hljómskálagarðinn 16. nóvember 2007.
Blysför var farin í Hljómskálagarðinn 16. nóvember 2007 í tilefni af degi íslenskrar tungu. Lagt var af stað frá Aðalbyggingu Háskóla Íslands og staðar numið við styttu Einars Jónssonar af Jónasi Hallgrímssyni. Formaður Rithöfundasambandsins, Pétur Gunnarsson, flutti ávarp.