Doktorsvörn Evald Sæmumdsen 18. janúar 2008
Doktorsvörn Evald Sæmumdsen 18. janúar 2008.
Doktorsvörn við læknadeild Háskóla Íslands.
Þann 18. janúar 2008 varði Evald Sæmundsen sálfræðingur doktorsritgerð sína, „Autism in Iceland – Prevalence, diagnostic instruments, development, and association of autism with seizures in infancy“, eða „Einhverfa á Íslandi – Algengi, greiningartæki, framvinda og tengsl einhverfu við flog hjá ungbörnum“. Andmælendur voru dr. Lennart von Wendt, prófessor í taugasjúkdómum barna við Helsinki University Central Hospital, og dr. Christopher Gillberg, prófessor í geðlæknisfræði barna- og unglinga við Göteborg University.
Leiðbeinandi var dr. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor í heilbrigðis- og faraldsfræði við læknadeild Háskóla Íslands. Dr. Stefán B. Sigurðsson, deildarforseti læknadeildar, stjórnaði athöfninni.