Doktorsvörn Mathieu Fauvel 19. febrúar 2008.
Doktorsfyrirlestur Mathieu Fauvel 19. febrúar 2008.
Doktorsverkefnið, „Spectral and Spatial Methods for Classification of Urban Remote Sensing Data“, fjallar um nýjar aðferðir í flokkun fjarkönnunarmynda. Verkefnið var unnið undir sameiginlegri handleiðslu leiðbeinenda frá Grenoble Institute of Technology (INPG) í Frakklandi og Háskóla Íslands og veita skólarnir doktorsgráðuna sameiginlega. Þetta er í fyrsta sinn sem Háskóli Íslands veitir sameiginlega prófgráðu.
Mathieu Fauvel varði doktorsverkefnið við INPG þann 28. nóvember 2007. Leiðbeinendur voru Jón Atli Benediktsson, prófessor við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands, og Jocelyn Chanussot, prófessor við INPG. Við doktorsvörnina voru eftirtaldir andmælendur: dr. Henri Maitre, ENST í París, dr. Gregoire Mercier, Háskólanum í Brest, dr. Sebastiano Serpico, Háskólanum í Genúa, dr. Albert B. Aoui, Háskólanum í Nice, dr. Jordi Inglada, CNES í Toulouse, og dr. Jóhannes R. Sveinsson, verkfræðideild Háskóla Íslands.