Doktorsvörn María Ragnarsdóttir 5.september 2008
Doktorsvörn María Ragnarsdóttir 5. september 2008.
Föstudaginn 5. september 2008 fór fram doktorsvörn í sjúkraþjálfun við læknadeild Háskóla Íslands. Þá varði María Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari, MSc, doktorsritgerð sína Öndunarhreyfingamælirinn ÖHM-Andri: Áreiðanleiki, viðmiðunargildi og gagnsemi í klínískri vinnu. Andmælendur voru dr. Margareta Emtner prófessor í sjúkraþjálfun við háskólann í Uppsölum og dr. Eyþór H. Björnsson sérfræðingur í lungnasjúkdómum við LSH. Leiðbeinandi í verkefninu var dr. Ella Kolbrún Kristinsdóttir, dósent við sjúkraþjálfunarskor HÍ. Kristján Erlendsson, varaforseti læknadeildar, stjórnaði athöfninni.