Doktorsvörn Rúnar Unnþórsson verkfræðideild 24.10.08
Doktorsvörn: Rúnar Unnþórsson, verkfræðideild 24. október 2008.
Rúnar Unnþórsson varði doktorsritgerð sína: „Acoustic Emission Monitoring of CFRP subjected to Multi-Axial Cyclic Loading“ eða „Notkun hljóðþrýstibylgna til að fylgjast með koltrefjastyrktum fjölliðublöndum sem verða fyrir lotubundnu margása álagi“. Andmælendur eru dr. Kanji Ono, prófessor emeritus frá Henry Samueli School of Engineering and Applied Science við UCLA og dr. Karen Holford, prófessor við Cardiff School of Engineering. Leiðbeinendur voru dr. Magnús Þór Jónsson og dr. Tómas P. Rúnarsson, prófessorar við verkfræðideild Háskóla Íslands. Dr. Ebba Þóra Hvannberg, prófessor við Háskóla Íslands stjórnaði athöfninni.