Háskóli Íslands - Háskóladagurinn 16. febrúar 2008.
Háskóladagurinn, 16. febrúar 2008.
Á Háskólatorgi Háskóla Íslands kynntu allar deildir Háskólans og Kennaraháskóla Íslands námsframboð sitt í grunn- og framhaldsnámi, og voru námsleiðirnar hátt á fjórða hundrað talsins. Námsráðgjafar veittu leiðsögn og ráðgjöf og fjölmargar þjónustustofnanir kynntu starfsemi sína. Gestum var boðið að skoða þessa glæsilegu nýbyggingu Háskólans.