Gestakennarar frá Harvard til HÍ
Jón Atli Benediktsson, Dr Lorelei Mucci, Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor, Katja Fall, Unnur Valdimarsdóttir, forstöðumaður Miðstöðar í lýðheilsuvísindum við HÍ og July Casperezky, doktorsnemi eftir að samningarnir voru undirritaðir í dag.
Þær Lorelei Mucci, lektor við læknadeild Harvardháskóla og Katja Fall, vísindamaður við faraldsfræðideild Harvard School of Public Health, skrifuðu í dag undir gestakennarasamninga við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, læknadeild Háskóla Íslands.
Samingarnir eru liður í samstarfi skólanna um sameiginleg rannsóknarverkefni ásamt uppbyggingu á hágæða framhaldsnámi í lýðheilsuvísindum við HÍ.
Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands munu gestaprófessorarnir koma þegar að kennslu og leiðsögn meistara- og doktorsnema í lýðheilsuvísinum. Þær Mucci og Fall muni einnig halda utan um nemenda-, nýdoktora- og kennaraskipti milli skólanna og séu því mikilvægur hlekkur í áframhaldandi vísindasamstarfi háskólans við Harvard. Undirritun formlegra samninga muni án efa styrkja þau tengsl enn frekar og hvetja fleiri fræðimenn og nemendur skólanna til virks rannsóknarsamstarfs.