Fyrirlestur - Ragnar Bragason 1. nóvember 2010
Hvernig verður sjónvarpsþáttur til?
Ragnar Bragason hélt fyrirlestur í Háskólabíói 1. nóvember 2010 í fyrirlestraröðinni „Hvernig verður bók til?“ sem ritlist stóð fyrir í samvinnu við Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands.
Ragnar leikstýrði hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttaröðum Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin og var enn fremur einn af handritshöfundum. Í fyrirlestri sínum fjallaði hann um vinnuna að þáttunum, einkum það hvernig spuni var notaður við sköpun leiktexta og hvernig leikarinn varð að meðhöfundi.