• Actavis styrkir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.
    Actavis styrkir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur – 21. janúar 2011 – Í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur árið 2010, og því að 30 ár voru liðin frá sögulegu forsetakjöri hennar, ákvað lyfjafyrirtækið Actavis að leggjast á árar með stofnuninni við að koma á fót alþjóðlegri tungumálamiðstöð hér á landi í nafni Vigdísar. Í þessu skyni lagði Actavis stofnuninni til 30 milljónir króna til byggingar húss fyrir starfsemi stofnunarinnar. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur sett sér það markmið að byggja þrjú þúsund fermetra hús austan við Háskólabíó sem mun m.a. hýsa alþjóðlega tungumálamiðstöð og alla kennslu og rannsóknir í þeim fjórtán erlendu tungumálum sem kennd eru við Háskóla Íslands. Með því að setja tungumálamiðstöðina á laggirnar er haldið áfram því brautryðjendastarfi sem Vigdís Finnbogadóttir hefur unnið í þágu tungumála á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem þekkir af eigin raun hve veigamikið það er í alþjóðaviðskiptum að hafa á að skipa starfsmönnum sem búa yfir góðri kunnáttu í erlendum tungumálum og eru læsir á menningu annarra þjóða. Vigdís Finnbogadóttir var viðstödd undirritun samningsins í Háskóla Íslands, 21. janúar 2011, ásamt Ástráði Eysteinssyni, forseta Hugvísindasviðs, og Auði Hauksdóttur, forstöðumanni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.