• Ráðstefna kvenrektora í Kína 2011 – Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sótti ráðstefnu kvenrektora í Xiamen í Kína í nóvember 2011. Við það tækifæri hitti hún Wu Yanxiong, rektor Communication University of China í Nanjing (sem er reyndar karl!). Hér eru þau í nágrenni ráðstefnustaðarins.