Doktorsvörn - Viðar Halldórsson
Doktorsvörn í félagsfræði – Viðar Halldórsson – 1. júní 2012
Viðar Halldórsson varði doktorsritgerð sína No Man Is His Own Creation: The Social Context of Excellence in Sports við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands 1. júní 2012. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, forseti Félags- mannvísindadeildar, stjórnaði athöfninni í stofu 102 í Háskólatorgi.
Andmælendur voru John Allegrante, prófessor við Columbia University í New York í Bandaríkjunum, og Michael Katovich, prófessor við Texas Christian University í Texas og Northwestern University í Chicago í Bandaríkjunum. Leiðbeinandi var Þórólfur Þórlindsson prófessor og auk hans sátu í doktorsnefnd Jón Gunnar Bernburg prófessor og Stephen G. Wieting, prófessor við University of Iowa í Bandaríkjunum.
Markmiðið með doktorsrannsókninni var að tengja árangur í íþróttum félagsfræðilegu samhengi sínu með því að skoða þátt hins félagslega umhverfis í honum. Niðurstöður úr rannsókninni sýna að ýmsir þættir í félagslegu umhverfi hafa áhrif á árangur. Félagslegt umhverfi hefur einnig áhrif á gildi íþrótta, hvaða íþróttir eru stundaðar og með hvaða hætti. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að ákveðin blanda atvinnumennsku og áhugamennsku getur skapað hagstætt umhverfi fyrir árangur í íþróttum. Árangur í íþróttum byggist einnig á samspili staðbundinna félagslegra þátta og hnattvæðingar íþrótta. Verkefnið var styrkt af Rannsóknarnámssjóði Rannís og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.