Simon Harald Klüpfe - Doktorsvörn
Doktorsvörn í efnafræði – Simon Klüpfel – 29. júní 2012
Simon Klüpfel varði doktorsritgerð sína, Innleiðing og endurmat á Perdew-Zunger sjálforkuleiðréttingunni, við Raunvísindadeild Háskóla Íslands 29. júní 2012. Guðmundur G. Haraldsson, forseti deildarinnar, stýrði athöfninni í stofu 132 í Öskju.
Andmælendur voru John P. Perdew, prófessor í þéttefniseðlisfræði við Tulane-háskóla í Bandaríkjunum, og Paul-Gerhard Reinhard, prófessor emeritus í kjarneðlisfræði við Erlangen-Nürnberg-háskóla í Þýskalandi. Leiðbeinandi doktorsefnisins var Hannes Jónsson, prófessor í Raunvísindadeild.
Doktorsverkefnið fjallaði um þróun á reikniaðferðum til að spá fyrir um eiginleika efna, þá einkum útvíkkun á þéttnifellafræði en það er sú nálgun sem mest er notuð í dag í reikniefnafræði og reiknieðlisfræði þéttefnis. Ný bestunaraðferð og hugbúnaður (Quantice) fyrir svigrúmaþéttniháð orkufelli rafeindakerfa voru þróuð og notuð til að kanna eiginleika Perdew-Zunger-leiðréttingarinnar (PZ-leiðréttingarinnar) og endurmeta hana. Það endurmat bætir við og leiðréttir í sumum tilfellum niðurstöður fyrri reikninga en sýnir jafnframt að PZ-SIC gefur ekki þá nákvæmni sem sóst er eftir. Sú þróun á aðferðafræði og hugbúnaði sem doktorsverkefnið felur í sér getur kost á því að nota felli sem eru háð svigrúmaþéttni, auk heildarrafeindaþéttni, og þessir auknu möguleikar ýta undir framtíðarþróun á nákvæmari orkufellum fyrir stór rafeindakerfi en nú þekkjast.