Þorvarður Jón Löve - doktorsvörn
Doktorsvörn í læknavísindum – Þorvarður Jón Löve – 25. mars 2013 –
Þorvarður Jón Löve varði doktorsritgerð sína, Sóragigt á Íslandi – rannsókn á íbúum Reykjavíkur, við Læknadeild Háskóla Íslands 25. mars 2013. Guðmundur Þorgeirsson, forseti deildarinnar, stjórnaði athöfninni í Hátíðasal skólans. Þetta var í fyrsta sinn sem notaður er titillinn „doktor í læknavísindum“, áður nefndist titillinn „doktor í læknisfræði“.
Andmælendur voru Philip J. Mease, prófessor við læknadeild Univeristy of Washington, og Jón Hjaltalín Ólafsson, dósent við Læknadeild Háskóla Íslands.
Leiðbeinandi doktorsefnisins var Björn Guðbjörnsson, prófessor við Læknadeild, og í doktorsnámsnefnd voru að auki Helgi Valdimarsson, prófessor emeritus, Helgi Jónsson prófessor, Bárður Sigurgeirsson, sérfræðingur í húðsjúkdómum, og Kristján Erlendsson dósent.
Í doktorsritgerðinni er í fyrsta sinn fjallað um hversu sjúkdómurinn sóri og sóragigt er algengur á Íslandi, sýnt fram á hvernig hann liggur mjög sterkt í fjölskyldum og hvernig vissar naglbreytingar tengjast sóra og sóragigt á ólíkan hátt. Byggt er á gögnum sem safnað var í framhaldi af rannsóknum á húðsjúkdómnum sóra þar sem nærri 200 sjúklingar voru skoðaðir sérstaklega í þessum tilgangi.
Ónæmisfræðideild Landspítala – Háskólasjúkrahúss og Rannsóknastofa í gigtlækningum studdu verkefnið en hluti þess var unninn í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.