• Verðlaun
    Nemendur
    Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
    Fyrirtæki og stofnanir utan HÍ
    Verðlaun fyrir Íslendingaappið 13. apríl 2013 – Liðið Sad Engineer Studios varð hlutskarpast í samkeppni sem Háskóli Íslands og Íslensk erfðagreining stóðu að um svokallað Íslendingaapp. Liðið var skipað þremur nemendum í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Í keppninni var leitað eftir nýjum hugmyndum að notkun Íslendingabókar á snjallsímum og skráðu tólf lið háskólanema sig til leiks. Sex þeirra skiluðu tillögum að appi fyrir tilskildan tíma, á miðnætti miðvikudaginn 10. apríl, og kynntu þau lausnir sínar í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar þann 13. apríl 2013. Dómnefnd keppninnar var vandi á höndum enda lausnirnar mjög fagmannlegar og frumlegar. Meðal þess sem horft var til við mat á öppunum var frumleiki, útlit og virkni þeirra, auk þess sem tekið var tillit til virkni liðanna á samfélagsmiðlum á vinnslutímanum. Þá gafst almenningi kostur á að velja bestu lausnina í sérstakri skoðanakönnun á Facebook-síðu keppninnar og vógu atkvæði almennings jafnt á móti áliti dómnefndar í þeim þáttum sem kosið var um í netkönnuninni. Þegar upp var staðið taldi dómnefnd lausn liðsins Sad Engineer Studios besta. Í umsögn dómnefndar um appið kemur fram að hönnun og útlit hafi verið sett fram á skýran hátt, hugmyndir séu einfaldar og vel útfærðar og fagurfræði einföld og vel hugsuð. „Þá hefur lausnin að geyma margar nýstárlegar hugmyndir að nýtingu Íslendingabókar. Uppbygging forrits er skýr og kóði er læsilegur. Kynningin var vel skipulögð og glæsileg,“ sagði einnig í umsögn dómnefndar. Liðið skipa þeir Arnar Freyr Aðalsteinsson, Hákon Þrastar Björnsson og Alexander Annas Helgason, nemendur í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Þeir hlutu í sigurlaun eina milljón króna og verður lausn þeirra nýtt sem viðbót við Íslendingabók. Í öðru sæti varð liðið Skyldleikur og í þriðja sæti Hugbúnaðarbúllan. Allar lausnirnar má sjá á Facebook-síðu keppninnar: http://www.facebook.com/islendingaapp.