• Viðurkenningar
    Verðlaun
    Fyrirtæki og stofnanir utan HÍ
    Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2013 – 5. desember 2013 – Jón Gunnar Bernburg – Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir 2013 voru afhent á Rannsóknaþingi Rannís fimmtudaginn 5. desember 2013. Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, hlaut viðurkenninguna og er það í fyrsta sinn sem félagsvísindamaður fær þessi verðlaun. Jón Gunnar fæddist árið 1973. Hann lauk BA-prófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og doktorsprófi í sömu grein frá State University of New York í Albany í Bandaríkjunum. Hann hlaut rannsóknastöðustyrk Rannís árin 2003 til 2005 en hefur kennt við Háskóla Íslands frá árinu 2002. Jón Gunnar varð lektor við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands árið 2005, dósent árið 2007 og loks prófessor við Félags- og mannvísindadeild árið 2009. Sérsvið Jóns Gunnars eru félagsleg frávik, afbrotafræði, skipulagsheildir og aðferðafræði. Hann hefur sýnt að hann er óragur við að glíma við ólík viðfangsefni á sviði félagsfræði. Hann hefur einkum unnið mikilvægt starf á þremur fræðasviðum í rannsóknum á íslensku samfélagi. Í fyrsta lagi er hann einn af leiðandi fræðimönnum á sviði stimplunarkenninga í félagsfræði (labeling theory). Í öðru lagi hefur hann látið að sér kveða í kenningum um siðrof. Loks hefur hann verið í fararbroddi rannsókna á áhrifum og gerð nærsamfélagsins og áhrifum þess á velferð barna og unglinga hérlendis. Þessar rannsóknir eru taldar hafa bæði mikið fræðilegt og hagnýtt gildi. Rannsóknir Jóns Gunnars eru þegar virtar og auk þess unnar í virku alþjóðlegu samstarfi og hafa niðurstöður úr þeim birst í gæðatímaritum eins og Sociology, Criminology og Journal of Research Crime and Delinquency.