Verkefnið Betri svefn: gagnvirk netmeðferð við svefnleysi –
Hugmyndin Betri svefn var ein tíu viðskiptahugmynda sem kepptu til úrslita í Gullegginu. Þær voru valdar úr hópi 327 hugmynda sem sendar voru inn í keppnina í janúar. Betri svefn hlaut sérstök verðlaun Íslandsstofu sem felast í þátttöku í markaðsverkefninu „Útflutningsaukning og hagvöxtur“ og snýr að markaðssetningu erlendis.
Erla Björnsdóttir, doktorsnemi í sálfræði við Háskóla Íslands, Hálfdán Steinþórsson viðskiptafræðingur og læknarnir Steindór Ellertsson og Gunnar Jóhannsson standa að baki hugmyndinni um viðskiptahugmyndina Betri svefn sem hlaut sérstök verðlaun í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið 2013. Viðskiptahugmyndin snýst um að veita gagnvirka netmeðferð við svefnleysi sem byggð er á hugrænni atferlismeðferð (HAM).
Þriðjungur fullorðinna glímir við svefnleysi á hverjum tíma og svefnlyfjanotkun Íslendinga er sífellt að aukast. Rannsóknir hafa ítrekað staðfest að langtímanotkun svefnlyfja er gagnslaus og getur haft skaðleg áhrif á heilsu. Fá önnur úrræði eru í boði á Íslandi og þau eru oft dýr og óaðgengileg almenningi. Rannsóknir sýna að árangursríkasta meðferðin við langvarandi svefnleysi er hugræn atferlismeðferð (HAM) og eru kostir hennar umfram lyf helst þeir að hún virkar betur, áhrifin eru langvarandi og er hún án aukaverkana.
Erla, Gunnar og Steindór eru núverandi eða fyrrverandi nemendur við Háskóla Íslands. Þau námskeið á vegum HÍ, „Frá hugmynd að veruleika”, sem er eins og nafnið gefur til kynna hugsað til þess að aðstoða frumkvöðla við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
Vonast er til að verkefnið bæti svefn Íslendinga og auki þar með lífsgæði fólks sem glímir við svefnleysi og að meðferðin dragi úr þeim óbeina kostnaði sem fylgir langvarandi svefnlyfjanotkun. Þar má nefna aukna slysatíðni, beinbrot hjá eldra fólki og aukna notkun heilbrigðisþjónustu.