Úthlutun - Sjóður Sigríðar Lárusdóttur
Styrktarsjóður Sigríðar Lárusdóttur – úthlutun 2013 –
Tveimur styrkjum var úthlutað úr Styrktarsjóði Sigríðar Lárusdóttur 25. júní 2013. Styrkirnir renna til rannsókna á stoðkerfissjúkdómum sem Sigurveig Pétursdóttir bæklunarskurðlæknir og Guðrún Lilja Óladóttir læknir standa að.
Heildarupphæð styrkjanna nemur einni milljón og fjögur hundruð þúsund krónum og er þetta í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.
Tilgangur Styrktarsjóðs Sigríðar Lárusdóttur er að efla rannsóknir á sviði bæklunarlækninga en sérstök áhersla er lögð á rannsóknir á meðfæddum göllum í mjaðmalið, svo sem ættgengi, tíðni og afleiðingum. Sjóðinn stofnaði Sigríður Lárusdóttir (f. 5. maí 1918) 27. ágúst 2003 til minningar um þá sem hafa glímt við meðfædda sjúkdóma í mjöðm en Sigríður átti við þann sjúkdóm að stríða frá fæðingu.