• Icelandic Online hlýtur viðurkenningu á degi íslenskrar tungu
    Dagur íslenskrar tungu
    Verðlaun
    Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
    Hugvísindastofnun
    Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
    Íslensku- og menningardeild
    Vefnámskeiðið Icelandic Online, sem á rætur í starfi Háskóla Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, hlaut sérstaka viðurkenningu á degi íslenskrar tungu fyrir stuðning við íslenska tungu. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra veitti viðurkenninguna í Iðnó 15. nóvember síðastliðinn. Í greinargerð ráðgjafanefndar segir um Icelandic Online: „Námskeiðið Icelandic Online er vefnámskeið í íslensku sem erlendu máli. Það var tekið í notkun fyrir tíu árum og hefur bæst við námsefnið jafnt og þétt allar götur síðan. Icelandic Online er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Námskeiðið er einkum ætlað erlendum háskólanemum en einnig öðrum sem áhuga hafa á íslensku máli og menningu, bæði erlendis og hér á landi. Að verkefninu standa Hugvísindastofnun, Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Námskeiðið hefur stuðlað að aukinni íslenskukunnáttu svo um munar og hefur gagnast tugþúsundum notenda víða um heim.“ Fyrsta Icelandic Online-námskeiðið var gefið út árið 2004 en það nýjasta, Icelandic Online 5, var opnað á síðasta ári. Námskeiðin eru gagnvirk og byggð á nýjustu rannsóknum í kennslufræði annarra/erlendra tungumála á netinu auk áralangrar reynslu af kennslu íslensku sem annars máls við Háskóla Íslands. Tölvunarfræðinemar við Háskóla Íslands, Daníel Páll Jóhannsson og Össur Ingi Jónsson, ásamt Patrick Thomas tölvunarfræðingi vinna nú að þróun „apps“ til að unnt sé að bjóða námskeiðið á nýjustu fartækjum, s.s. snjallsímum og spjaldtölvum. Samstarfsverkefnið er styrkt af Nordplus Voksen. Í starfshópnum eru fyrir hönd Háskóla Íslands: Birna Arnbjörnsdóttir prófessor, Kolbrún Friðriksdóttir aðjúnkt, Patrick Thomas tölvunarfræðingur og Úlfar Bragason rannsóknarprófessor. Frá Fróðskaparsetri í Færeyjum: Hjalmar P. Petersen lektor, John Mikkelsen, tölvunarfræðingur og nemi, og Malan Marnersdóttir, prófessor og sviðsforseti. Frá Helsinki-háskóla: Helga Hilmisdóttir lektor.