Doktorsvörn - Varsha Ajaykumar Kale
Þann 3. nóvember 2014 varði Varsha Ajaykumar Kale doktorsritgerð sína í lyfjavísindum. Ritgerðin bar heitið „Lífvirkar súlfateraðar fjölsykrur úr sæbjúganu Cucumaria frondosa og ensím sem umbreyta slíkum lífefnum.“ - „Bioactive sulfated polysaccharides from the sea cucumber Cucumaria frondosa and enzymes active on this class of biomolecules.“
Andmælendur voru dr. Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor við Matvæla-og næringarfræðideild Háskóla Íslands, og dr. Maher Abou Hachem, lektor við Danmarks Tekniske Universitet (DTU). Leiðbeinendur í verkefninu voru dr. Sesselja Ómarsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, og dr. Ólafur H. Friðjónsson, verkefnastjóri hjá Matís. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd dr. Elín Soffía Ólafsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, og dr. Jóna Freysdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Dr. Már Másson, deildarforseti Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands, stjórnaði athöfninni.