Lokahóf Þjóðarspegilsins XV
Þjóðarspegillinn XV: Ráðstefna í félagsvísindum var haldin föstudaginn 31. október 2014 við Háskóla Íslands. Um 160 erindi voru flutt á ráðstefnunni um efni allt frá þjóðfræði fyrri alda til afleiðinga íslenska efnahagshrunsins. Einnig var veggspjaldasýning í Gimli og á Háskólatorgi þar sem fjölmargir fræðimenn, meistara- og doktorsnemar kynntu rannsóknir sínar. Lokahóf ráðstefnunnar var haldið á Háskólatorgi.