Kynningarfundur fyrir erlenda nemendur
Erlendir nemendur voru boðnir velkomnir miðvikudaginn 27. ágúst 2014 í Háskólabíói. Kristín Ingólfsdóttir rektor ávarpaði nemendur. Á fundinum voru fulltrúar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta, Náms- og starfsráðgjöf, Reiknistofnun, Stúdentaráði og Nemendaskrá og fóru yfir ýmis hagnýt mál er snúa að námi og þjónustu.