Lóðasamningur við Reykjavíkurborg
Þann 1. september 2014 undirrituðu borgarstjóri Reykjavíkur og rektor Háskóla Íslands samning um lóðir háskólans. Samningurinn tekur til um 400 þúsund fermetra landsvæðis og markar ákveðin tímamót í samskiptum Reykjavíkurborgar og háskólans. Tekin eru af öll tvímæli um afmörkun eignarlóðar háskólans, sem og hvaða lóðir falla undir lóðarleigu en þar eru lóðir fyrir kennsluhúsnæði nú undanskildar. Vatnsverndarsvæði í Vatnsmýri færist á ný til borgarinnar og staðfest er vilyrði til háskólans um uppbyggingu á Fluggarðasvæði. Vísindagarðareitur nýtur sérstöðu í samningnum að því leyti að þar er háskólanum heimilt að framselja lóðarréttindi til eflingar vísinda- og atvinnustarfsemi.