Doktorsvörn - Nzar Rauf Abdullah 090515
Laugardaginn 9. maí 2015 varði Nzar Rauf Abdullah doktorsritgerð sína í eðlisfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin bar heitið: Holljóseindastýrð rafeindaleiðni um kerfi skammtapunkta og bylgjuleiðara (Cavity-photon controlled electron transport through quantum dots and waveguide systems).
Andmælendur voru dr. Michael Thorwart, prófessor við Háskólann í Hamborg, Þýskalandi, og dr. Einar Örn Sveinbjörnsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands.
Leiðbeinandi var dr. Viðar Guðmundsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands.
Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Andrei Manolescu, prófessor við Háskólann í Reykjavík, og dr. Chi-Shung Tang, prófessor við National United University í Miaoli á Tævan.
Dr. Hörður Filippusson, prófessor emerítus og staðgengill forseta Raunvísindadeildar, stjórnaði athöfninni.