Doktorsvörn Ingibjargar V. Kaldalóns á Menntavísindasviði
Föstudaginn 27. nóvember 2015 fór fram doktorsvörn frá Uppeldis- og menntunarfræðideild við Menntavísindasvið. Þá varði Ingibjörg V. Kaldalóns ritgerð sína Stuðningur við sjálfræði nemenda í íslenskum grunnskólum (Autonomy support in Icelandic cumpulsory schools).
Andmælendur voru dr. Kristján Kristjánsson prófessor við Háskólann í Birmingham í Englandi, og dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor við Menntavísindasvið.
Leiðbeinendur voru dr. Ragnhildur Bjarnadóttir, prófessor við Menntavísindasvið, meðleiðbeinandi dr. Gretar L. Marinósson, prófessor við Menntavísindasvið. Auk þeirra sat í doktorsnefndinni dr. Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Menntavísindasvið. Ólafur Páll Jónsson, forseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar, stýrði athöfninni.