• Lego-hönnunarkeppni 31. janúar 2015
    Kynningar, þ.m.t. námskynningar nema háskóladagurinn
    Börn
    Unglingar
    Verkfræði- og náttúruvísindasvið
    Menntavísindasvið
    Samstarf
    Fyrirtæki og stofnanir utan HÍ
    FIRST LEGO League (FLL), tækni- og hönnunarkeppni grunnskólanema, var haldin í níunda sinn laugardaginn 31. janúar 2015 í Háskólabíói. Metfjöldi liða tók þátt í keppninni að þessu sinni, eða 18 lið víðs vegar af landinu. Í hverju liði voru á bilinu 6-10 manns á aldrinum 9-16 ára og þátttakendur því samtals hátt í 200. Keppninni er skipt í nokkra hluta þar sem reynir á margs konar hæfileika enda markmið keppninnar að efla færni í vísindum, verkfræði og tækni, örva nýsköpun og byggja upp hæfileika eins og sjálfstraust og samskipta- og forystuhæfni. Keppninni er valið ákveðið þema ár hvert og að þessu sinni var þemað „Skóli framtíðarinnar“. Meðal verkefna keppenda var að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Mindstorms LEGO-i til að leysa tiltekna þraut sem tengist þemanu og þá áttu keppendur að gera vísindalega rannsókn á ákveðnu efni sem einnig tengdist þemanu og jafnframt að halda ítarlega dagbók um undirbúning fyrir keppnina. Enn fremur fluttu keppnisliðin frumsamið skemmtiatriði og þá þurftu þau að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennið sitt. Þegar stigin í keppninni höfðu verið tekin saman reyndist liðið Einn + níu sigurvegari, en það var skipað níu stúlkum og einum dreng úr Grunnskóla Reyðarfjarðar. Í viðurkenningarskyni fyrir sigurinn hlaut liðið forláta LEGO-bikar og 150 þúsund króna ferðastyrk frá aðalbakhjarli keppninnar, Nýherja, en með sigrinum tryggði liðið sér jafnframt keppnisrétt á heimsmeistaramóti FIRST LEGO League 2015 í St. Louis í Bandaríkjunum. Það hlaut enn fremur 100 þúsund króna styrk til fararinnar frá leiktækjafyrirtækinu Krumma. Einn + níu var einnig valin besta liðsheildin en auk þess voru veitt verðlaun í eftirtöldum flokkum: Besta dagbókin: Gemsarnir úr Grunnskóla Hornafjarðar Besta lausn í hönnun og forritun vélmennis: LegóFásk úr Gunnskóla Fáskrúðsfjarðar Vélmennakapphlaup: Lið Breiðholtsskóla Besta rannsóknaverkefnið: Nafnlausar úr Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði