• Vísindi á mannamáli - Halldór Þormar
    Fyrirlestrar
    Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
    Fræðsla fyrir almenning
    Rektorar
    Vísindi á mannamáli: Mæði-visnuveirur í íslensku sauðfé og tengslin við alnæmi Vísindauppgötvanir á Íslandi tengdar veirusjúkdómum í sauðfé og mikilvægi þeirra fyrir skilning á alnæmisveirunni voru meginefni erindis sem Halldór Þormar, prófessor emeritus í frumulíffræði við Háskóla Íslands, flutti í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 20. janúar kl. 12.10. Þetta var þriðja erindið í fyrirlestraröðinni Vísindi á mannamáli. Alnæmisveiran HIV fannst snemma á níunda áratug tuttugustu aldar í sjúklingum með forstigseinkenni alnæmis. Rannsóknir sýndu að HIV veldur sjúkdómnum og í ljós kom að veiran var svokölluð lentiveira, sú fyrsta sinnar tegundar sem fannst í mönnum. Nærri 30 árum áður höfðu veirur af þessum flokki fundist hér á landi. Sjúkdómarnir mæði og visna herjuðu á íslenskt sauðfé um miðbik tuttugustu aldar og undir forystu Björns Sigurðssonar, fyrsta forstöðumanns Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, var ráðist í rannsóknir á sjúkdómunum. Björn réð Halldór Þormar til starfa árið 1957 til að prófa þá tilgátu að orsakir visnu og mæði væru veirur og tókst þeim og samstarfsmönnum að staðfesta að visna væri veirusjúkdómur. Í erindi sínu sagði Halldór frá þessum tímamótarannsóknum sem sýndu einnig að visnu- og mæðiveirur eru afbrigði af sömu veirunni, mæði-visnuveiru. Síðar kom í ljós að sú veira er náskyld hinni alræmdu HIV-veiru sem veldur alnæmi í fólki. Því má segja að rannsóknirnar að Keldum hafi stuðlað að auknum skilningi manna á HIV-veirunni en báðar veirurnar valda hæggengum sjúkdómum, þó í ólíkum líffærum. Enn eru stundaðar rannsóknir á mæði-visnuveirunni að Keldum sem jafnframt nýtast til þess að varpa ljósi á líffræði HIV og alnæmis.