Doktorsvörn í menntavísindum - Jónína Vala Kristinsdóttir
Föstudaginn 11. nóvember 2016 varði Jónína Vala Kristinsdóttir doktorsritgerð sína í menntavísindum við Uppeldis- og menntunarfræðideild. Ritgerðin nefndist: Collaborative inquiry into mathematics teaching: Developing a partnership in researching practice in primary grades and teacher education. Á íslensku, Námssamfélag um stærðfræðikennslu: Að þróa samvinnurannsókn um kennslu í grunnskóla og kennaramenntun.
Andmælendur voru dr. Simon Goodchild, prófessor við Háskólann í Agder í Noregi, og dr. Tom Russell, prófessor við Queens háskóla í Ontario í Kanada.
Aðalleiðbeinandi var dr. Allyson Macdonald, prófessor við Menntavísindasvið, og meðleiðbeinandi var dr. Barbara Jaworski, prófessor við Loughborough-háskóla í Englandi. Auk þeirra sat í doktorsnefndinni dr. Hafdís Guðjónsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið.
Dr. Ólafur Páll Jónsson, prófessor og deildarforseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar við Menntavísindasvið, stjórnaði athöfninni sem fram fór í Skriðu við Stakkahlíð.