Viljum við samfélag án kennara?
Þriðjudaginn 4. október 2016 boðaði Menntavísindasvið til opins fundar vegna alvarlegrar stöðu í menntakerfinu, manneklu á leikskólum og yfirvofandi kennaraskorti. Fundurinn var haldinn í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Jón Atli Benediktsson rektor flutti ávarp.
Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, flutti erindi um fækkun nýnema í kennaranámi.
Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið, flutti erindið Lýðfræði grunnskólakennara: Fjöldi kennara í náinni framtíð.
Þar næst voru settar fram hraðaspurningar til fulltrúa stjórnmálaflokka sem voru í framboði til Alþingis. Fundarstjóri var Helgi Seljan, fjölmiðlamaður og einn umsjónarmanna Kastljóss.
Fundargestir voru hvattir til að „tísta“ og fylgjast með umræðum á Twitter undir myllumerkinu #kennaraskortur.