Doktorsvörn í vistfræðilíkönum - Chrispine Nyamweya
Þann 30. janúar 2017 varði Chrispine Nyamweya doktorsritgerð sína í vistfræðilíkönum við Raunvísindadeild. Ritgerðin bar heitið: Vistfræðilegt líkan af Viktoríuvatni (Ecological modeling of Lake Victoria).
Andmælendur við vörnina voru dr. Jason Link, yfirvísindamaður vistkerfastjórnunar hjá bandaríska haf- og loftslagsráðinu (NOAA), og Ian Cowx, prófessor við Alþjóðlega hafrannsóknarstofnun Hull-háskóla í Bretlandi.
Leiðbeinandi var Gunnar Stefánsson, prófessor við Raunvísindadeild. Einnig sátu í doktorsnefnd þau dr. Erla Sturludóttir, nýdoktor við Raunvísindastofnun Háskólans, og dr. Tumi Tómasson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
Oddur Ingólfsson, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar, stjórnaði athöfninni sem fram fór í Hátíðasal.