Edda Óskarsdóttir - Doktorsvörn
Edda Óskarsdóttir varði þann 31. ágúst 2017 doktorsritgerð sína í menntavísindum við Kennaradeild. Ritgerðin bar heitið: „Constructing support as inclusive practice: A self-study. Á íslensku: Skipulag stuðnings í skóla án aðgreiningar: fagleg sjálfsrýni“.
Andmælendur voru dr. Clare Kosnik, prófessor við Háskólann í Toronto, og dr. Kristine Black-Hawkins, dósent við Cambridge-háskóla.
Aðalleiðbeinandi var dr. Hafdís Guðjónsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið, og meðleiðbeinandi var dr. Deborah Tidwell, prófessor við Háskólann í Norður-Iowa. Auk þeirra sat í doktorsnefnd dr Patricia Thomson, prófessor við Háskólann í Nottingham.
Baldur Sigurðsson, deildarforseti Kennaradeildar, stjórnaði athöfninni.