Rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum
Átjánda ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum fór fram á Háskólatorgi dagana 3. og 4. janúar 2017. Tæplega 1000 manns tóku þátt í ráðstefnunni sem gerði hana þá fjölmennustu frá upphafi.
290 rannsóknir voru til umfjöllununar, bæði í formi erinda og veggspjalda.
Við ráðstefnuslit voru fjórir ungir og efnilegir vísindamenn verðlaunaðir fyrir rannsóknir sínar.