• Listaverk
    Listaverk eftir Kristján Davíðsson sem er varðveitt á fyrstu hæð í Lögbergi. Verkið er undirritað K. Davíðsson '73.
  • Listaverk
    Verkið er koparskúlptúr eftir Jón Benediktsson og nefnist Innan vébanda. Í skrá yfir verk í eigu Háskóla Íslands stendur fyrir aftan titil verksins (Lögmenn á Þingvöllum). Verkið er í eigu Lagadeildar og var gefið til minningar um Ármann Sveinsson (14.4.1946–10.11.1968). Á koparskildi á stöplinum undir verkinu stendur: Gjöf Minningarsjóðs Ármanns Sveinssonar stud.juris til Lagadeildar Háskóla Íslands.