Tinna Gunnlaugsdóttir - Doktorsvörn í þýðingafræði:
Doktorsvörn í þýðingafræði: Tinna Gunnlaugsdóttir
Mánudaginn 31. ágúst 2026 fóf fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá varði Tinna Gunnlaugsdóttir doktorsritgerð sína í þýðingafræði, Lifandi texti, Áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Viðburðurinn fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.
Andmælendur við vörnina voru Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands og Guðrún Kristinsdóttir, nýdoktor og stundakennari í frönskum bókmenntum og menningu. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingarfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Brynja Þorgeirsdóttir, dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og Magnús Þór Þorbergsson leiklistarfræðingur.
Ásgrímur Angantýsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.